Vinir Vigdísarstofnunar er óformleg hreyfing áhugamanna sem hefur tekið sér það hlutverk að leggjast á árar með Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við að koma í höfn Alþjóðlegri miðstöð tungumála á Íslandi.
Með byggingu húss Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur verður starfsemi hennar stórefld. Í húsinu verður fullkomin aðstaða til kennslu og rannsókna í erlendum tungumálum og auk þess mun byggingin hýsa eftirfarandi starfsemi:
Vigdís var gerð að heiðursfélaga STÍL, Samtaka tungumálakennara á Íslandi, síðastliðið vor og birtist við hana viðtal í tímariti samtakanna, Málfríði, af þvi tílefni. Í viðtalinu kemur meðal annars fram hvernig tungumál og menning hafa allt frá æsku verið áhugamál Vigdísar.